
Kirkja hefur staðið í Hvammi frá því snemma á öldum, en hennar er getið í kirknatali Páls Jónssonar biskups í Skálholti frá þvi um 1200. Hefur þar lengstum verið prestssetur.
Elsti máldagi kirkjunnar sem varðveist hefur er frá 1223 og mun vera vígslumáldagi hennar. Hún var þá helguð Maríu guðsmóður og hinum helga Þorláki biskupi.
Bænhús eru talin hafa verið allvíða í dalnum í kaþólskum sið en hálfkirkja á Skarðshömrum allt fram yfir 1600. Útkirkja var í Norðtungu.
Þótt kirkja hafi verið reist í Hvammi snemma eignaðist hún ekki staðinn fyrr en löngu seinna eða 1522. Það ár gaf sr. Helgi Jónsson prestur kirkjunni Hvamm og jarðirnar Galtarhöfða og Sanddalstungu til prestseturs ásamt ýmsu öðru. Hvammskirkja átti þá einnig Klettstíu, Desey, Fornahvamm, Krók, Háreksstaði og Hól.
Prestssetur var í Hvammi allt fram til 1907 en þá varð mikill niðurskurður á prestaköllunum í landinu og þeim fækkað mjög með lögum. Þá var m.a. ákveðið að leggja Hvamm undir Stafholt og kom sú sameining til framkvæmda 1911, þegar sr. Gísli Einarsson flutti frá Hvammi að Stafholti.
Kirkjan sem nú stendur í Hvammi var reist 1880. Þá var þar prestur sr. Gunnlaugur Þorvaldur Stefánsson, sonur sr. Stefáns Þorvaldssonar í Stafholti. Áður hafði verið efnað í nýja kirkju og komst hún upp um sumarið og haustið 1880. Er kirkjan lítið en snoturt hús með turni en enga forkirkju og tekur um 50 manns í sæti. Verulegar endurbætur voru gerðar á kirkjunni upp úr 1970 og margt þá fært til fyrra horfs svo segja má, að hún sé nærri sinni upprunalegu mynd.
Kirkjan á nokkra góða gripi. Má þar nefna kaleik og patínu með ártalinu 1826 merkt EG. Sennilega er þetta fangamark Eggerts Guðmundssonar gullsmiðs í Sólheimatungu. Kaleikurinn er talinn kjörgripur, gerður af silfri með tveimur gullplötum með stafafléttunum MPS og GGD.
Altaristaflan er málverk eftir Þórarinn B. Þorláksson, listmálara, og sýnir Emmausgönguna. Eftirmynd að danskri fyrirmynd, að því talið er.
Kirkjuklukka er aðeins ein, með áletruninni 1791, dönsk að uppruna.
Stéttarsamband bænda gaf kirkjunni fyrir allmörgum árum fótstigið orgel (harmoníum) til minningar um fyrsta formann sambandsins, Sverri Gíslason bónda og organista í Hvammi.
Skírnarsáinn skar Ríkharður Jónsson og var hann færður kirkjunni á 90 ára afmæli kirkjuhússins til minningar um prestshjónin í Hvammi.
Sama ættin hefur setið Hvamm frá 1916 og hafa kirkjubændur jafnframt verið organistar, eða í þrjá ættliði.